Um Arker

Verkin okkar

Verkin okkar fjalla um tengsl arkitektúrsins við sögu og gæði umhverfisins. Við hugsum um tengslin í umhverfinu, um rýmin sem eru góð  fyrir samveruna, hvernig arkitektúr gefur lífinu gildi,  og samspilið milli okkar manneskajnna og náttúrunnar. Við viljum gera vel til verka og við viljum finna leiðina með þér og þeim sem koma til með að upplifa það sem við sköpum, saman.


ARKER hefur langa reynslu af hugmynda og byggingarferli, byggingarumsóknum og ekki minnst: byggingarþekkingu frá sjálfbærum lausnum. Meðal annars: náttúrulegri loftun, góðti efinsnotkun, t.d. CLT (massífu timbri), orkusparnaði, m.m.

Verkin okkar spenna arkitektúr í öllum stærðum: frá skólum, skrifstofubyggingum og menningarhúsum, til einbýlishúsa, sumarhúsa, breytingu- og endurnýtringu rýma og byggingarefnis.

ARKER byggir á langri reynslu af eigin verkum undir stjórn Einars Bjarka Malmquist, arkitekts MNAL MArch – og í samvinnu við aðra arkitekta þegar það hefur hentað gerð verksins.

Við höfum gleði af að vinna með góðu fólki!
ARKER vinnur að jafnaði bæði með sérfræðingum innan sjálfbærni, tæknilausnum og efnisnotkunnar. Samvinnan tryggir að við höfum rétta þekkingu á réttum stað, í bæði hönnunar- og byggingarferlinu. Þetta er reynsla sem við tókum með okkur þegar við skoðum möguleikana sem eru til staðar í hevrju verki fyrir sig.

IMG_4734 kopi

Hvað þarf til?

Hefur þú ákvarðanavilja og metnað um að gera vel? Arkitektúr þarf ekki að vera flókinn.  Ef markmiðin eru vel valin, og góður skilningur er fyrir hendi, er leiðin oft greiðfær. 

Veltu fyrir þér möguleikunum. Leystu úr læðingum hvað þú eða þið eruð að velta fyrir ykkur. Og, hafðu gjarnan samband. Svo sjáum við hvað setur.

1800
Gangtu inn í  þinn tíma! Hvað á þinn arkitektúr að gera fyrir þig og þína?
1
Við viljum að okkar verk hafi metnað fyrir framtíðina og markmiðið er að velja eifaldar og hentugar sjálfbærar lausnir
1+
Það eru alltaf minnst þrjár góðar leiðir sem hægt er að skoða þegar skapa á nýjan stað. Við veljum saman réttu leiðina.
Dæmi um verk sem hafa verið birt:
 
Hús í Ósló, Noregi
(texti á ensku):
https://www.domusweb.it/en/news/2010/10/11/house-in-oslo.html
Leðurblökuhúsið i Noregi / The Batty House (Uncube Magazine, not available online after fall 2025)
Leðurblökuhúsið / Viðbygging í Nittedal með vísindastofu, ,Noregi (texti á norsku):


Við bjóðum upp á...

Fagþekkingu og reynslu af að skapa góða staði. Bæði alveg nýja staði og nýjar lausnir á góðum og gömlum stað, þar sem sagan getur spilað með í þróun á nýjum rýmum. Við höfum reynslu af því að tegja okkur langt og ná góðum lausnum. Við leggjum áheyrslu á samvinnu til að tryggja góðar arkitektónískar lausnir, skapa saman góð og vinarleg verk.

Hvað ert þú að sækjast eftir?

Hvaða spurningar hefurðu um arkitektúr þegar þú skoðar staðinn sem þú vilt bæta eða breyta? Það fyrsta sem við gerum þegar við heyrumst, er að skoða staðinn og spurningarnar um hvernig er hægt að hugsa verkið og kannski finna fleiri áhugaverðar spurningar, áður enn við förum í að finna launsina.

Verð

Er háð ferli og stærð verkisins. Fyrsta skrefið er að tala saman, og þegar meira er vitað um verkið og kostnaðarramman er hægt að skoða fleiri leiðir að markmiðinu. Yfirleitt byrjum við með að verða samála um verð fyrir fyrsta hluta verksins, eftir að við höfum rætt móguleikana og vitum að við viljum vinna saman. Þá byrjar fyrsti hluti hönnunarvinnunar. Ef við erum svo sammála um hvað séu rétt markmið eftir að fyrstu hugmuyndirnar eru komnar niður á blað, með fyrstu teikningunum, veljum við næstu skref og gerum samning um ferlið áfram og hugsanlega um hvða fleiri aðilar komi að þróun og byggingu verksins. Verkaupar hafa oft mismundandi tengsl og hugmyndir um hverjir eiga að byggja verkið, það er eðlilegur hluti af umræðunni.

Hvað þarft þú að undirbúa?
Sendu gjarnan upplýsingar um lóðina og það sem þú heldur að geti haft áhrif á þróun hugmyndana. Svo skulum við heyrast og skoða saman hvaða spurningar eru mikilvægastar við nálgun lausnarinnar. 

Punktarnir sem við skoðum, eru meðal annars: 1) Hver eru gæði svæðisisns, með hliðsjón að sólarátt, veðurfari, hita, gróðri og dýralífi? 2) Hvernig metum við söguna, byggingarhætti og efnisnorkun á svæínu? 3) Hvaða móguleikar eru á lóðinni sjálfri, í efni eða náttúru sem er þar nú þegar. 4) Hvernig híbýli gætu hentað vél hér, og hvernig samveru á lóðin og rýmin, bæði inni og úti að bjóða upp á. 5) Hvað er hægt að fá ókeypis úr þeim gæðum sem eru til staðar og hvar er mikivægast að byggja á einstakan hátt svo að arkitektúrinn skapi góðan takt og stemmingu fyrir tilveruna? 6) Hvernig getur efnisnotkun, val á byggingarlausnum og tækni, orðið rétt val fyrir staðinn og daglega notkun?


Punktarnir gefa þér kannski hugmyndir sem þú getur skrifað hjá þér, og kannski ertu komin(n) á stað í ferlið, nú þegar. Það er bara að velta möguleikunum fyrir sér. Það eru eru margvíslegar husgsanir sem geta mótað akkurat þennan arkitektúr. sem núna er farinn að spíra. 

Arkitektúr

– það munar um það!